Menu

Sálmarnir 54

BIB

1 Sálmur eftir Davíð, 2 ortur þegar menn frá Síf reyndu að svíkja hann í hendur Sál konungs. 3 Komdu í mætti þínum, ó Guð, og bjargaðu mér! Verndaðu mig með krafti þínum! 4 Bænheyrðu mig, 5 því að ofbeldismenn hafa risið gegn mér – heiðingjar sem ekki trúa á þig, sækjast eftir lífi mínu. 6 En Guð er minn hjálpari. Hann er vinur minn! 7 Fyrir hans tilverknað mun illska þeirra koma þeim sjálfum í koll. Efndu loforð þitt, Guð, og þurrkaðu út þessa illvirkja. 8 Glaður kem ég fram fyrir þig með fórn mína. Ég lofa nafn þitt, Drottinn, því það er gott. 9 Guð hefur frelsað mig frá dauða og yfirbugað óvini mína.

Everything we make is available for free because of a generous community of supporters.

Donate